Bíó

Bíó

Kvikmyndadeild Senu á og rekur 3 glæsileg kvikmyndahús.

 

Smárabíó er fullkomnasta kvikmyndahús landsins. Gestir okkar njóta myndarinnar í topp mynd og hljóðgæðum á stórum sýningartjöldum í öllum sölum., hljóðkerfi Gott útsýni óháð salar eða sætavali og stólar sem uppfyllir allar kröfur um gæði. Smárabíó býður upp á allt það besta sem kvikmyndahús getur boðið upp á í heiminum í dag. Bíóið er með 5 sali og tekur rúmlega 1.000 manns í sæti. Lúxussalurinn okkar er með hægindastólum og stóru sýningartjaldi, 18 ára aldurstakmark er í salinn eftir kl 20.00 á kvöldin.  Salurinn hefur því verið mjög vinsæll hjá þeim sem kjósa þægindi og betri bíómenningu.

 

Borgarbíó Akureyri er búið 2 kvikmyndasölum og tekur rúmlega 300 manns í sæti, en við það vinnur á annan tug starfsfólks. Kvikmyndahúsið er eitt fárra frumsýningabíóa utan höfuðborgarinnar og var stofnað fyrir miðja síðustu öld og er því líklega eitt elsta kvikmyndahús á landinu.

 

Þann 1 maí 2007 tók Sena við rekstri Háskólabíós, 4 salir með 840 sætum. Háskólabíó hefur gengið í gegnum mikla endurnýjun frá því að Sena tók við rekstrinum, t.d. hefur verið skipt um sæti og salir dúklagðir og málaðir upp á nýtt.  Mikil endurnýjun hefur einnig átt sér stað á sýningartækjum og er bíóið búið fullkomnum digital sýningarbúnaði í öllum sölum í dag.

Við bjóðum ykkur að prófa eitt best geymda leyndarmálið í bíómenningu í dag, Háskólabíó topp gæði !

 

Smelltu hér til að skoða kvikmyndvefinn midi.is sem veitir daglega uppfærðar upplýsingar um sýningartíma, kvikmyndir, fréttir og margt margt fleira.

 

 

Verðskrá:

Almennt verð 1300
Barnaverð 0-8 ára 700

Barnaverð 9-12 ára 1150

Eldri borgarar/öryrkjar  1000


Lúxus  2500

Lúxus  3D 2600


3D almennt verð 1500
3D barnaverð 0-8 ára 1050

3D barnaverð 9-12 ára 1300

3D Eldri borgarar/öryrkjar 1200

Gleraugu seld sér

 

Íslenskar:

Almennt verð 1500

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli